þegar maður er að byrja saman er frábært að fá bangsa, soldið amerískt en ég hefði ekki vijað sleppa því að fá bangsa frá mínum þegar við vorum að byrja saman:)
Sendu henni kort, mjög krúttlegt kort og skrifaðu eitthvað inn í það sjálfur.
Það rómantískasta sem kærastinn minn hefur gert fyrir mig var í fyrrasumar minnir mig, ég var að vinna á stað sem fjölskyldan hans á og þar er verið að rækta rósir. Hann er að klippa af þeim og réttir mér fallegustu og minnstu óútsprungnu rósir sem ég hef séð, ca 5 cm langar:)
Hann hefur gert miklu meira og rómantískara en þetta en fyir mér var þetta það fallegasta og það var alveg óundirbúið, þetta voru ekki búðar rósir og þær voru klipptar af handa mér og það var það sem gerði það svo sérstakt:)
Gefðu henni bara eitthvað sem þér finnst sérstakt, ekki eitthvað sem allir eru að fá eða búðu eitthvað til handa henni:)