Þú ert ungur enn og átt lífið framundan, vissulega er erfitt að vera sagt upp, sérstaklega ef þú hefur miklar tilfinningar til stelpunnar.
En hafðu þó aðeins varan á, miklar tilfinningar og mikil hrifning merkja ekki endilega að þú sért yfir þig ástfanginn af stelpunni en ég ætla ekki að fullyrða neitt :)
Það getur verið möguleiki að stelpan vilji einfaldlega vera frjáls aðeins lengur, sama hversu langur tími það verður, það fer bara eftir stelpunni.
Miðað við það að hún telji sig ekki vera tilbúna í fast samband finnst mér ólíklegt að þið byrjið saman strax aftur, en aldrei að segja aldrei.
Ekki er hægt að dæma um tengsl tveggja einstaklinga út frá jafn litlum upplýsingum og þú gefur upp (enda er valið þitt um það hversu miklu þú greinir frá ykkar sambandi), t.d. er ekkert gefið upp um það hversu lengi (ca. tími, ekki bara „ágætlega langan tíma") þið voruð saman og hvernig sambandið var :)
Þetta er fúlt og ógeðslega sárt, ég þekki það sjálfur, og næstu dagar eiga örugglega eftir að verða erfiðir. En ekki örvænta, hvort sem allt sé endanlega búið á milli ykkar eða þið takið aftur saman eftir einhvern óákveðinn tíma. Þú ert ungur og átt eftir að upplifa margt, þetta er bara einn steinn á þínum vegi, þó stór sé.
Svo verður þú bara að tala við hana og sjá til hvort þið getið haldið vinskap ef ekkert annað býðst, en það getur reynst erfitt og tekur tíma.
Mæli samt með því að þú sért ekki að elta hana uppi á röndum og alltaf að reyna að ná sambandi við hana, hvort sem er símleiðis, á MSN eða með öðrum hætti. Þú þarft smá tíma fyrir sjálfan þig líka til að jafna þig :)
Ég er samt ekki að banna þér alveg að hafa samband við hana, langt í frá. Þið eigið eftir að vinna betur úr ykkar málum og komast að endanlegri niðurstöðu. Það verður örugglega erfitt, en þegar því er lokið áttu örugglega eftir að vera feginn, sama á hvaða veg málin þróast :)