Ekki vera svona gömul? Af því þetta er MÍN skoðun, jesús kristur, það er ekki í lagi með sumt fólk, fyrirgefðu að ég sé einfaldleg ekki sammála ÞÉR!
Ég er sjálf í fjarlægðarsambandi, hitti minn kærasta bara aðra hverja helgi, so what? Þarf samt ekki að sýna það fyrir öðrum hversu heitt ég þrái hann þegar við erum saman? Jú ég geri það á annan veg, sem MÉR finnst miklu snyrtilegri og fallegri, með því að tala við hann, horfa innilega í augunum á honum, brosa með honum, stríða honum, kyssa hann létta kossa, leiða hann, halda utan um hann og svo framvegis!
Auðvitað hleyp ég inní herbergið hans (þegar ég kem til hans um helgar) til þess að kyssa og kela, enn yfirleitt labbar systir hans á eftir mér inní herbergið til hans, og hvað? Á ég þá bara að kela við hann þótt systir hans er fyrir framan? Nei, það er einfaldlega hægt að hemja sig!
Mikið vorkenni ég vin þinnar fyrrverandi, verð alltaf hálf kjánaleg sjálf og fæ þvílíkan kjánahroll þegar ég er með fólki sem er ofan í hvort öðru hægri vinstri, mér finnst það ekki passa.
Þótt ég hitti minn maka ekki mikið, þá náum við að troða öllu saman í einn pakka, án þess að þurfa að vera að keleríast fyrir framan aðra, ef við erum svona rosalega gröð og þráum hvort annað heitt, þá förum við einfaldlega bara afsíðis!
Oj sem minnir mig á eitt, hversu ógeðslegt er það, þegar unglingspar er slefandi uppí hvort annað fyrir framan foreldrana sína eða tengdó. *kjánahrollur*