Ok, Intenz, þetta er fyrir þig.
Tilraun 1.
Kæra kruzi,
Leitt að heyra að þú sért svona ósátt við þau mæðginin. Þar sem að þú ert svona ung, þá tel ég afar óráðlegt að þú reynir að hlaupast á brott eða eitthvað slíkt, því það kemur bara niður á þér aftur.
Það sem að ég mæli með að þú gerir, er að bíða þangað til að þú nærð pabba þínum einum heima einhverntímann (þú getur jafnvel planað það fyrirfram með því að biðja hann um smá tíma fyrir ykkur tvö), og segir honum hreint út hvað þér finnst. Ef að þér finnst mjög óþægilegt að vera svona hreinskilin við pabba þinn, þá geturðu líka prófað að skrifa niður skoðanir þínar (fyrst það er tækniöldin, þá gætirðu til dæmis sent honum e-mail meðan hann er í vinnunni).
Svo geturðu líka talað við þessa stelpu, og sagt henni að þér líki ekki við framkomu hennar við þig.
Á meðan að þú bíður eftir tækifæri til að tala við pabba þinn, þá er gott ráð að hlusta á góða músík og lesa eitthvað sem dreyfir huganum,hitta vini og annað.