Ég er nánast búin að lesa alla þessa bók, á eitthvað smá eftir en mér fannst hún skemmtileg. Hún er aftur á móti mjög amerísk eins og við má búast og á þá ekki alltaf við íslenskar aðstæður. En hún er sniðug, aðal rithöfundurinn Greg er mjög sniðugur og hreinskilinn. Þó að sumt sé frekar asnalegt eins og: Hann er ekki nógu skotinn í þér ef hann vill ekki giftast þér“ eða ”Hann er ekki nógu skotinn í þér ef að vill ekki sofa hjá þér".. hehe, stating the obvious.
En öll bókin er í rauninni bara að gefa konum hreinskilið svar frá sjónarhóli karlmanns. Konur spá svo óendanlega mikið í hlutunum og gera oft meira úr þeim en þeir raunverulega eru þannig ég held að það sé sniðugt fyrir allar konur að lesa hana.
Sumt veit maður, en maður veit ekki allt.