Sæll :)
Einu sinni var ég MJÖG feiminn, sagði aldrei neitt og hlustaði bara á alla tala og var með MJÖG lágt sjálfstraust.
…ég er enþá feimin ef ég hitti ókunnugt fólk, en það er bara ég ;) Sjálfstraustið hefur hækkað mjög mikið, og ég held ég sé með frekar gott sjálfstraust núna:)
En þetta gerðist ekki á einum degi..þetta tekur langan tíma…en ef þú gefst ekki upp tekst það.
Ég hef heyrt að stelpur vilji stráka sem eru alls ekki feimnir, og með rosalega gott sjálfstraust, en þá er ég ekki þessi dæmigerða stelpa. Ég elska þegar strákar eru feiminir. Ég kynntist einni stelpu sem var mjög hress og sjálfsörugg. Hún spurði ein strák hvort hann vildi koma með henni á djammið til Reykjavíkur og hvort hann gæti sýnt henni Reykjavík (hún var sko sænsk) Hann fór bara allur í kút, og náði að stynja einhverju útúr sér, vá hvað ég elska þannig :) En kanski er ég bara eitthvað skrítin, ég veit ekki :)
En það sem þú þarft að gera er að hækka sjáfstraustið, þessir “vinir” þínir hafa farið virkilega illa með þig, en mundu, það er aldrei of seint að fara að gera eitthvað í málunum.
Það sem hjálpaði mér, var leiklistin. Ég hef farið á leiklistarnámskeið, leikið í leikritum og það var það sem hækkaði sjálfstraustið hjá mér, og við það, eignaðist ég almennilega vini. (Einu sinni átti ég ekki sanna vini, eins og þú)
Ef þú hefur eingan vegin áhuga á leiklist er margt annað sem þú getur gert, þú getur t.d farið að æfa einhverja íþrótt sem þú hefur áhuga á, og orðið góður í henni.
Hugsaðu líka um útlitið, ef þér finnst þér of feitur, er um að gera að fara að hreyfa sig, og minka nammið (eitthvað sem ég get ekki, hehe :) Ef þér finnst þú vera of bólóttur, þvoðu þér þá í framan kvölds og morgna. Keyptu þér svo eitthvað til þess að bera á bólurnar. (Ef þú ert með bólur, er ekkert að segja það)
Ég held að eina sem þú þurfir að gera sé, að hækka sjálfsraustið. Þá hætturu að vera svona mikið feiminn :)
Þetta er allt sem mér datt í hug núna, en gat samt ekki gefið þér betri ráð, þar sem ég veit voðalega lítið um þig.
Ef þú vilt er ég tilbúin til þess að hjálpa þér meira, en þá þarf ég vita meira um þig, og hvað það er sem gerir þig ósjálfsöruggan. Þú getur svarað mér hér eða sent mér pm :)
Þar sem ég var einu sinni með lágt sjálfstraust, og veit hvernig það er að vera feimin, tel ég mig vita hvernig þetta er og hvað þú getur gert :)
An eye for an eye makes the whole world blind