Sælt veri fólkið.

Þar sem maður er orðinn það virkur á þessu áhugamáli og þó nokkur óleyst vandamál bíða mín í skilaboðahólfinu, þá fannst mér óréttlátt gagnvart þeim einstaklingum sem bíða svars frá mér að stökkva frá án þess að láta vita.

Málið er nefnilega þannig að ég stend í innanlands búslóðaflutningum og þess vegna gæti verið að ég verði frá og með deginum í dag óvirkur í einn til þrjá daga.

Hvort ég komi aftur á Huga seint í kvöld eða eftir þrjá daga fer alveg eftir hversu vel þessi flutningur gengur og einnig hversu einfalt það á eftir að reynast mér að nálgast internet tengingu.

Ég vona að þeir sem bíða ólmir eftir svari eða hafa sent mér ósk um það að ég svari korkinum þeirra sýni mér smá biðlund og brúki þolinmæði sína til hins ýtrasta :)

Ég er búinn að setja ykkur inn í daglega rútínu hjá mér kæru Hugarar og mun þess vegna ekki hverfa frá ykkur lengi.

Hafið það gott þangað til að við heyrumst aftur, hvort sem það verður seint í kvöld (sem gerir þennan kork minn harla ónauðsynlegan :) eða eftir þrjá daga.

Kær kveðja,
Fróðleiksmoli