Sæll kloinnn.
Í fyrsta lagi skaltu aldrei tala á þennan hátt um kærustuna þína “er gellan þroskaheft?”.
Og nei, það er ekkert “lame”. Ef eitthvað, þá finnst flestum strákum það bara nokkuð gaman að eiga eldri kærustu og eru stoltir af því.
Hættu að spá svona harkalega í aldri. Þú hljómar mjög ungur og óreyndur, þannig að taktu þig á og vertu kærustunni þinni góður og tillitssamur; þá kannski áttu hana skilið.
Ég tel hana hinsvegar góða að vilja vera með svona mikið yngri strák, þar sem stúlkur vilja í mjög mörgum tilfellum ekki strák sem er einum mánuði yngri, hvað þá meira. Það bendir til þó nokkurs þroska af hennar hálfu að láta það ekki standa í veg fyrir sér.
Teldu sjálfan þig heppinn.
Kær kveðja,
Fróðleiksmoli