Eitt örlítið ljóð eftir mig sjálfann.


í greipum þínum grét mitt hjarta,
gæfa öll mér horfin var,
þú hélst mér fast í fangi þínu,
fylltir mig af von um svar,

þú gafst ey fala hugsun þína,
hélst mér enn á heljarbrún,
munt þú mig aftur vilja sem þína?
eða mun val þitt að lokum verða hún?

í sárum sit ég enn og vona,
mun ég verða þín á ný?
synd það skal talist að særa mig svona,
yfir gleði og glaum ég ey lengur bý,

þróttur minn er brátt á enda,
að krafti ég leita' en ekkert finn,
val þitt mun mig til himna senda,
tár mín falla í hinsta sinn