Fann ljóð á tölvunni minni sem ég samdi einhverntímann um fyrrverandi kærustuna mína, sambandið búið núna en ákvað að prófa að skella þessu ljóði inn…for…fun? Something. Ekki vel samið, ekki nærri því, innihaldið er something… a bit stalkerish en kannske cute..in a way. Samt ekki. Oh well.


Án þín allt svo svakadimmt
með þér allt svo gott
ég vona af öllu hjarta
að þú farir ei á brott.

Ég vildi að ég gæti hjálpað
því ég veit þér líður ei vel
ef bara betri væri ég
ég hjálpað gæti, ég tel.

Ég halda myndi utan um þig
ef bara værir þú hér.
Ég vildi að þurrkað gæti tárin þín
því ég ástfanginn er af þér.

Ef eitthvað gæti ég gert
til að betur liði þér.
Aðeins þyrftir það að nefna
og það komið er.

Fyrirgefðu hvað ég hef
illa farið með þig
þú átt mikið meira skilið
en bara að hafa mig.