Sæll “Kommi”.
Fyrst að öllu verð ég að reyna að höfða til þín er kemur að betra málfari og stafsetningu. Að vanda skrif sín gefur mun betra yfirbragð og fólk á til með að taka manni alvarlegar og hlusta betur á mann (og aðstoða).
En varðandi vandamál þitt:
Fyrsta lagi þá er ég að draga þá ályktun að þú sért mjög ungur og þessi stúlka einnig. Ef stúlkan sem þú varst með hætti ekki með þér útaf þessari “litlu systur” heldur einhverju öðru, þá er ekki mikið sem þú þarft að hafa áhyggjur af. “Litla systirinn” hlýtur að “gleyma” þessu á endanum. En ef hún er að valda þér miklu angri og jafnvel hafa neikvæð áhrif á líf þitt með þessu er tími til kominn til þess að gera eitthvað í þessu.
1. Talaðu við hana. Það besta sem þú getur gert til að byrja með er að reyna að fá hana á eintal og spurja hana “hvað sé í gangi” og útskýra fyrir henni að hegðun hennar sé gífurlega óæskileg og óréttlát þar sem að hún hafi aldrei átt neitt tilkall til þín og að hún hafi engan rétt á að láta svona. Mundu samt að vera eins blíður og rólegur og þú getur því reiði og æsingur gerir hana eingöngu ómótkækilegri fyrir rökum þínum.
2. Talaðu við bróður hennar. Ef númer eitt virkar ekki, þá geturu reynt að spjalla við bróður hennar. Hann hlýtur að geta rætt um þessa vanvisku hennar við hana ef hún er algjörlega ómóttækileg fyrir þínum orðum.
3. Talaðu við foreldra hennar. Ef ekkert að fyrrnefndum ráðum virkar, þá býst ég ekki við að neitt annað sé hægt að gera en að fara til foreldra hennar og reyna að útskýra fyrir þeim hvað sé í gangi. Þetta er að vísu frekar fjarlægur möguleiki þar sem eldra fólk á það til með að vilja ekkert blanda sér í “ástarmál” barna sinna og bregst jafnvel ílla við, þannig að þetta verður að flokkast undir neyðarúrræði.
Nú ef ekkert af fyrrnefndu virkar og þessi stelpa heldur áfram að áreita þig, þá verðuru að gera það sama og stúlkur gera sem lenda í svipuðu áreiti frá karlmönnum og það er að leita til lögreglu. En við skulum hafa það algjörlega á hreinu að þetta er gífurlegt neyðarúrræði og skal alls ekki brúkað nema í ýtrustu neyð.
Að öllum líkindum ættiru að geta leyst þetta vandamál með fyrstu 1 - 2 ráðunum.
Hafðu í huga: Ef þú varst að daðra eitthvað við hana eða láta hana halda að þú hefðir áhuga á henni, þá berðu sjálfur sök á þessu máli og skalt hafa það í huga áður en þú ferð að gera of mikið veður úr þessu. Ef svo liggur í málinu er ekkert annað að gera en að fara til stúlkunnar og biðja hana margfalt afsökunar á að hafa leitt hana til að halda að þú “vildir vera með henni” og vonast til að hún fyrirgefi þér (og einnig skammast þín fyrir að hafa daðrað það harkalega við aðra stelpu á meðan þú varst í sambandi).
Ef þú varst ekki að daðra við hana og þetta atferli hennar leiddi til þess að stúlkan sem þú varst með í sambandi “hlustaði” á hana varðandi hvað þú værir slæmur; og það leiddi svo á endanum til uppsagnar ykkar á milli, þá skaltu láta mig vita og ég skal reyna að ráðleggja þér í hvernig þú getir reynt að “laga það”.
Ég vona að þetta svar mitt hafi aðstoðað þig að einhverju leyti.
Kær kveðja,
Fróðleiksmoli