Smá ljóð sem ég samdi á nokkrum mínútum. :)

Ég kynntist þér,
Við urðum eitt,
Þú laugst að mér,
Við vorum ei neitt.

Þú sagðir þig elska mig,
Ég fann hvað ég ætti,
Ó, hve heppinn að hafa þig,
Seinna það mig grætti.

Þú sagðir allt skyldi verða gott,
Bros kom við það að heyra,
Senn þú svo fórst á brott,
Síðan varð ekkert meira.

Enn í dag ég hugsa þig,
Alla daga alla tíma,
Þú fórst því miður á bakvið mig,
Ljós þitt lauk að skína.
Gaui