Bara mjög slæm tilviljun og óheppni, eins og intens (held ég) sagðá þá er það ekki þér að kenna að þær séu komnar með tilfinningar í gang áður en þú hittir þær.
Þannig að ekki kenna þér um þetta því svona bara er þetta og það verður ekkert við því gert, engum að kenna.
Svo velurðu nú ekki alltaf þannig þó að það gerist kannski oft.
En já eins og sagt var að ofan þá er ást bara einfaldlega ósanngjörn.
En eins og allt þá blessast þetta að lokum, þú finnur einhverja sem þú munt vera með því örugglega svona 90% af fólki sem kemst yfir 40 gerir það og þó að þú hugsir kannski núna að það sé bara ein stelpa sem þú vilt eða að þú munir ekki finna aðra eða álíka þá er það bara eitthvað sem þú hugsar á þessu augnabliki því að þú ert væntanlega ekki í sjöunda himni yfir þessu.
En þú munt komast yfir þetta og þetta mun allt lagast, verður erfitt í einhvern tíma, kannski stuttan kannski langan og þú verður bara að þrauka í gegnum það, halda áfram og vona að þetta taki af sem fljótast.