Æj, ég ákvað að svara þessu, þó ég feginn vildi sleppa því, þar sem það segir sjálft að það er mismunandi hvað hverjum og einum einstaklingi finnst vera framhjáhald og hvað ekki.
Persónulegt álit mitt er hins vegar:
Perrast á netinu: Mér finnst það afar saklaust, þó það séu nú alveg takmörk. Ef þetta er einhver sem viðkomandi þekkir ekkert, þá finnst mér þetta vera í lagi, þó það séu takmörk eins og ég tók fram.
Horfa á klám: Mér finnst ekkert að því, þar sem klám gerir manni ekkert nema gott. Að horfa á klám með maka er ennþá betra. :)
Kyssa einhvern: Tja, mér finnst nú kossar á kinn allt í lagi, en kossar á munn (ef það er einstaklingur af gagnstæðu kyni) finnst mér vera framhjáhald.
Káfa á einhverjum: Framhjáhald.
1 night stand: Framhjáhald.
Horfa á einhvern: Það sleppur, þar sem þú ert ekki að gera neitt með viðkomandi.
En já, eins og ég segi, þá er þetta voða einstaklingsbundið og fer eftir hverjum og einum hvað þeim finnst vera framhjáhald og hvað ekki. Það er ekki hægt að alhæfa, þó mér finnist kynlíf með öðrum en maka vera alhæfing fyrir framhjáhald.
Gaui