Jæja ég ætla að segja afhverju ég er svona ástfangin af kærastunum mínum. Það fara sögusagnir hjá vinum mínum að ég sé bara með honum útaf því að hann á Mercedes-Benz, og ég er alin upp við Mercedes-Benz…en jæja hérna kemur þessi ástæða og þið megið alveg segja e-ð um þetta =)

ég skrifaði þetta á blogginu mínu þannig að þetta er Copy/Paste af henni =)

Ég veit að það fara sögusagnir um það að ég sé bara með Andra útaf því að hann á BENZ..en það er ekki satt, ég er með honum útaf því að hann er skemmtilegur, hann kemur mér til að hlæja á þann hátt sem enginn getur, honum þykir vænt um mig og mér um hann, hann vill eyða frí tímanum sínum með mér og hann gefur sér tíma í mig. ég hef ekki hitt yndislegri dreng hen hann Andra og ekki skemmir það að hann eigi Benz en það er ekki ástæðan afhverju ég er með honum.

Við eigum allt sameiginlegt og við getum talað um allt. =) líka það að við getum talað um tilfinningarnar okkar, við erum ekki alltaf að kyssast eins og við séum að borða hvert annað, heldur fara stundum heilu klukkutímarnir í það að tala =) og ef að e-ð kemur upp á hjá mér þá er hann þarna til að halda utan um mig og gefa mér þá hlíju sem ég hef ekki fengið frá öðrum….

Hann skilur mig og veit alltaf um hvað ég er að tala og hann veit hvernig mér líður, Hann hlustar á það sem ég þarf að segja og hann grípur ekki fram í fyrir mér(eins og allir).. Þó að við séum bara búin að vera saman í 2 mánuði þá veit ég að við erum sköpuð fyrir hvert annað og ég er tilbúin í að eyða það sem eftir er með honum, þessir tveir mánðuri hafa liðið eins og 2 ár….

Ef að ég hefði ekki hitt hann fyrir 2 og hálfum mánuði þá væri ég sennilega dauð upp í rúmi að bíða eftir að einhver að þessumm vinum mínum myndu hringja í mig… Ég elska hann meira en allt, ég myndi gera allt fyrir hann ef að hann bæði mig um að gera e-ð fyrir sig…

Hann eyddi tíma í mig á meðan enginn nennti því(áður en að við byrjuðum saman), Hann vildi hitta mig á meðan allir voru uppteknir og hann hlustaði á mig á meðan allir voru að tala ofan í mig…

Þetta er ekki nærrum því allt en ég gæti haldið svo endalaust áfram að ég væri komin með heila bók..en ég held að þetta ætti að vera næg ástæða afhverju ég er með honum og afhverju ég elska hann svo mikið..