Ég er með geðveikt gott plan fyrir þig. Eða ok, kannski ekki geðveitk gott plan en alla vega plan. Þetta hins vegar krefst þess að þú látir veskið þitt eða símann þinn fara í smá svaðilför. Ef þú ferð á undan henni út úr strætó, gleymdu þá símanum eða veksinu í sætinu þar sem húns er til. Gallinn við það er hins vegar sá, að kannski sér hún hann ekki og þú týnir s. eða v. eða hún sér hann áður en þú kemst út og lætur þig fá hann áður en þú ferð út. Hitt sem þú getur gert er að missa veskið (eða símann) þitt þegar þú ert að fara út úr strætó. Ég held það sé öruggari leið því þú getur látið það detta nálægt henni svo það sé öruggt að hún sjái það og þú getur hoppað út áður en hún nær að kalla í þig. Gallinn við þetta er að það er möguleiki að einhver annar taki veskið. Planið virkar svo þannig að hún finnur veskið eða símann, mér lýst samt persónulega betur á veskið, því maður hefur meira efni á að týna því, auk þess er kortið þitt góð persónuupplýsing. Svo hringir hún í þig og segir að hún hafi fundið veskið þitt. Þú spyrð hvar hún eigi heima og segist ætla að koma og ná í það. Nú eru komin smá tengsl á milli ykkar plús það að hún á inni hjá þér greiða. Notaðu nú hugmyndaflugið og hugsaðu hvernig þú getur launað henni greiðann. Hmmm???
Vó, ég er sorglegur að hafa nennt að skrifa þetta.
kv.peacock