Ég hef heyrt fólk tala svona, en gat ekki ímyndað mér að nokkur maður skrifaði svona.
Ef þetta er eitthvað djók, þá bið ég þig vinsamlega um að fara með þetta eitthvað annað, þar sem við erum ekki mikið fyrir svona húmor, þ.e. ef húmor má kalla. Okkur er fúlasta alvara með öllu því sem við dælum inn á þetta áhugamál okkar, og ef þú ætlar að gera lítið úr því með því að snúa þessu upp í grín, þá bið ég þig einfaldlega um að snúa þér eitthvert annað.
En hins vegar, ef þér er alvara með þessu, þá bið ég þig um að tala við kærasta þinn. Segðu honum að þú elskir hann ekki lengur og sért byrjuð að halda fram hjá með annari stelpu(?). Ég veit það á eftir að særa hann, en ef þú vilt kvelja hann með því að þið lifið bæði í lýgi og blekkingum, þá skaltu sleppa því að segja honum þetta. Sannleikurinn særir oft á tíðum, og á hann eflaust eftir að gera það. En illu er best af lokið, ekki satt?
Ef þú segir honum það ekki, og hann kemst að þessu seinna meir, mun hann seint/aldrei fyrirgefa þér, en ef þú segir honum þetta af fyrra bragði strax, mun hann fyrirgefa þér mun fyrr. Hreinskilni borgar sig. Taktu skref í rétta átt.
Gangi þér vel.