Það er alltaf leiðinlegt þegar svona gerist, en þú ert nú það ung þannig ég efast ekki um að þú eigir eftir að kynnast einhverjum yndislegum strák í framtíðinni, og þið eigið eftir að verða hamingjusöm til æviloka.
En svo ég aðstoði þig nú við að jafna þig á honum, þá geturu fundið þér áhugamál, sem tekur mest allan þinn frítíma. Einnig gefur þetta þér meiri tíma til að hanga með vinunum þínum, sem þykir vænt um þig.
En svo þú komist yfir hann sem sneggst, skaltu algjörlega hætta að hugsa um hann. Eyða honum úr símaskránni, svo þú kiknir ekki þegar þú flettir í gegnum símaskránna þína og sérð nafn hans. Einnig skaltu henda öllum myndum, sem þú átt til af honum, svo þú rekist ekki á mynd af honum og fallir aftur á fyrsta þrepið. Svo skaltu bara reyna að halda þér það upptekinni að þér gefist vart tími til að hugsa um hann.
En mundu, sorgarferlið er eftirfarandi:
- Afneitun
- Reiði
- Þunglyndi
- Sátt
…þannig þetta er hægt. Gangi þér bara sem best í þessum erfiða hjalla í lífi þínu. ;)
Gaui