http://hugi.is/romantik/threads.php?page=view&contentId=3579090

Ég er mjög ósammála þessu og vona að þetta sé ekki satt.

Sjáið nú til, ég er ástfanginn af stelpu, ég er 14 á 15 ári, ég hef aldrei séð fallegri stelpu á ævinni minni, ég hugsa aldrei um hana kynferðislega (ég hef prófað og bara hætt því strax, fýla það ekki), mér er illt í maganum þegar ég sé hana, mér dreymir um hana og hugsa um hana mjög mikið sama hvað ég er að gera.

Við þekkjumst ekki við “könnumst” bara við hvort annað. Ég myndi deyja fyrir þessa stelpu, þótt hún hati mig, finnst ég ógéðslegur og allt. Mér finnst við eiga margt sameiginlegt sem ég veit um hana og ég vona bara að hún hafi tilfinningar til mín á móti. Bæbæ.