ég veit ekki hvort þetta er bara á vissu stigi í samböndum. þ.e.a.s sem fólk saknar hvors annars alveg rooooosalega mikið.
þegar ég og kærastinn minn vorum búin að vera saman í 4-5 mánuði fór ég í 20 daga til útlanda. svo kom ég heim, og um leið fór hann til útlanda. þetta eru örugglega erfiðustu dagar lífs míns! án gríns…
núna erum við búin að vera saman í 2 og hálft ár, og ef við sjáum hvort annað eiginlega ekkert í viku eða lengur, þá finnst mér það allt í lagi! auðvitað sakna ég hans, en ég fer ekki að grenja! ég veit ekki hvort ég er bara orðin verri kærasta, eða hvort þetta er e-ð svona sérstakt með mann þegar maður er nýbyrjaður í sambandi.
hvað eruð þið búin að vera lengi saman?
“Imagination is the only weapon in the war against reality.”