Já sykur það eru bara allar stelpur ömurlegar og ómerkilegar.
Við notum bara gæjana þegar við þurfum á þeim að halda og gefum skít í þá þegar við viljum, hvað helduru að maður sé að spá í hvaða tilfinningar eitthvað strákfífl hefur? Svo finnst okkur líka allir strákar glataðir í rúminu og tölum endalaust um það, sérstaklega finnst okkur ömurlegt ef við þurfum eitthvað að hreyfa okkur í kynlífinu, tala nú ekki um ef gæjinn heimtar að maður totti hann. Þvílík og önnur eins heimtufrekja, hann á bara að haga sér eins og þægur strákur og sleikja stelpuna og ekki láta sér detta í hug að hún vilji gefa neitt á móti. Þetta er náttúrulega hrikalega ósanngjarnt þar sem grey strákarnir eru auðvitað þeir sem þurfa að sjá um allt púlið í rúminu og eiga því ekkert að þurfa að eyða einhverri orku í forleik eða annað pjatt. Svo erum við líka hræðilega óþroskaðar upp til hópa en gerum samt ekki annað að tala um hvað strákar eru óþroskaðir, sem auðvitað enginn strákur er í raun og veru, þeir eru allir mjöööög þroskaðir. Svo finnst okkur líka alveg sjálfsagt að við fáum að halda framhjá, okkur finnst nefninlega ekki eins alvarlegt þegar við gerum það eins og þegar strákar halda framhjá, enda er það líka alltaf stráknum að kenna ef við höldum framhjá, hann hefur náttúrulega bara verið svo leiðinlegur við okkur eða ekki sýnt okkur neina athygli. Svo vogum við okkur að verða brjálaðar ef gæinn heldur framhjá, ég meina það!!!
Já sykur minn, þú veist nú best sjálfur hvernig við stelpurnar erum, viltu ekki bara gerast hommi? Það er örugglega miklu auðveldara en að þurfa að díla við þessar óþolandi og ósanngjörnu stelpur.<br><br>Kveðja,
GlingGlo