Hugmyndin er í sjálfu sér ekki slæm, en þó svo að fólk sé að koma með vandamál sín hingað og fá svör við þeim er ég ekki viss um að ég mundi senda inn í “Kæri póstur kork” ef ég ætti við alvöru vandamál að stríða… sum svörin hérna eru það skelfilega slæm og skítkastið hrikalegt oft.
Sé t.d fyrir mér tvítugan strák sem á við það vandamál að stríða að ná honum ekki upp, hvaða svör haldið þið að hann mundi fá frá gelgjunum hérna inni ? úff ég væri ekki til í að vera í hans sporum…. þetta væri kannski framkvæmanlegt ef það yrði ritskoðað og lagað til í svörunum… því einhverja hluta vegna finnst sumum nauðsynlegt að svara með bulli og fatta ekki að það er oft betra bara að þegja.