Ok mig langar rosalega að gefa kærasta mínum einhverja rómantíska gjöf þegar ég kem heim frá sumafríinu minu :) En ég hef enga huuugmynd hvað það á að vera. Er búin að spurja hann líka og hann veit ekkert hvað hann vill hehe :) Endilega komið með einhver svör…allt kemur til greina ;) Takk takk
Eins og þessi sem skrifaði á undan mér, knús og langir kossar….
En svona pakkedí snakkedí….ja…ef það á að vera eitthvað svona rómó..hafa bara tilbúið vídjókvöld heima ^^ Eeeeen…ef að það er rómantískur perri í ykkur..þá geturðu náttúrulega bara gefið honum stórann brúsa af súkkulaði sósu..og beðið hann að koma með hugmyndir!
Eins og ég segi svo oft, þegar þú ert að velja gjöf ertu ekki að miða hana útfrá einhverjum aldri og einhverju kyni, heldur einstakling. Ég get vel ímyndað mér margt sem mér þætti óendanlega töff og gaman að fá, en einhverjum sem ég þekki þætti það einfaldlega óviðeigandi, óspennandi eða ógeðslegt.
Ertu ekki kærastan hans? ættirðu ekki að þekkja hann?
Hefur hann samt ekki minnst á eitthvað sem honum langar í eða eitthvað sem honum þætti gaman að fá? Uppáhalds nammið hans? gætir hugsanlega fundið sæmilega stóran poka af því í fríhöfninni og keypt tvo :) svona þar sem þið eruð ekki búin að vera það lengi saman.
tja, það eina sem ég bað mína kærustu að koma með bol með uppáhalds hljómsveitinni minni þegar hún kæmi tilbaka. En allavega, það fer eftir því hvað þú sjálf vilt gefa honum, eitthvað persónulegt? rómantískt? Mér dettur ekki neitt meira í hug sjálfur en vona að þetta reddist hjá þér, þú finnur eitthvað :).
HAAAAAAAAAAAA!!!!!!?????????? þó svo að ég komist ekki á netið reglulega, í þessi fáu skipti sem ég hef komið undannfarinn mánuð hef ég talað við þig… AND YOU HAVE A BOYFRIEND???? AND NOT TELLING ME??!!!
það er svo margt….um daginn fór ég og keypti sætan bangsa(btw…þetta va svona sætur froskur) sem hélt á hjarta og í því stóð I love you, setti það í sætan poka(svona gjafapoki) og keypti rós…
:d
"All we have to decide is what we do with the time that is given to us"
tja mér var alltaf slétt sama hvað kærastan min gaf mér þegar hún kom frá útlöndum nóg að hún kæmi. annars ef það gengur ekki upp að koma bara með sjálfa sig heim. þá bara eitthvað flott hálsmenn sem er hægt að vera með anytime anywhere =) eða eitthver föt sem þér finnst vera flott.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..