Okay það sem þú gerðir var mjög vitlaust! Þú ættir að vita það núna, og ég er nokkuð viss um að hún hafi fengið svo mikið sjokk því hún hefur greinilega tilfinningar. Ég fékk eitt sinn svona fréttir og það fyrsta sem ég hugsaði var ,,ég fyrirgef honum" en svo deginum eftir hugsaði ég um að gera það ekki, og þetta verður ótrúlega flókið. Maður veit ekkert hvað maður vill gera, en strákurinn talaði við mig mjög hjartnæmt hjá honum og svona og þá ákvað ég að gleyma þessu öllu. Er svona eiginlega búin að því, en hann sveik loforðið mitt og það braut í mér hjartað. Þannig ef eg væri þú myndi ég segja henni hvað hún er mér kær, og lofa því að þú gerir enga vitleysu aftur. Og þú verður að standa við loforðið!
“To the world you may be one person, but to one person you may be the world.”