Ekki spurja okkur hér á huga, við vitum ekkert í okkar haus.
Og við vitum sérstaklega lítið um þig og þinn andlega þroska, tilfinningar þínar til þessa manns né tilfinningar hans til þín.
Ef þið hafið áhuga, eruð skotin, hrifin eða jafnvel ástfangin af hvor öðru skipta fjögur ár engu máli, það eru tilfinningarnar sem gilda.
Myndi bara vera viss um að þú sért pottþétt nógu andlega þroskuð til að vera með einhverjum sem er þetta mikið eldri en þú.
En þú skalt samt muna, að flestir þeir sem væla yfir að stúlkur á þínum aldri séu með eldri strákum eru einmitt strákar á þínum aldri sem eru frekar súrir yfir að missa allar sætu stelpurnar til einhverra sem eru örfáum árum eldri :)