Samdi þetta ljóð handa kærastanum mínum sem er úti á sjó núna.

Framtíðin

Þú sem lætur mér líða svo vel,
hjarta mitt litla þér ég fel,
mig dreymir þegar ég sef,
þá fögru sýn,
er kossa þér ég gef.

Hvenær kemuru heim til mín,
ég spyr því ég sakna þín,
elsku ástin mín.

Söknuð sem nær engum enda,
ský sem mun aldrei lenda,
ást þér ég vil senda,
því saman við munum svífa,
þangað sem allir benda.