Kærastinn minn er svooo rómó að maður bara hreinlega bráðnar af að hugsa um hann :þ hehehe :D
Mest rómó sem mér dettur í hug sem hann hefur gert er þetta:
ég kom heim úr vinnunni (sona ca. hálf níu um kvöldið) var hann akkúrat að byrja að undirbúa kvöldmatinn. Að venju var knúsast og heilsast og kyssts, svo vildi hann endilega að ég færi inná bað, en ég þurfti ekkert að pissa eða neitt og skyldi ekkert hvað hann var að meina. Svo kom í ljós að hann var búinn að láta renna í bað, kveikja á kertum, kaupa rósir í körfu og koma fyrir þarna inni og setja smá nammi á baðbrúnina og ég var bara rekin í bað… já og það voru nokkur rósablöð fljótandi í baðinu líka :)
Svo þegar ég mátti koma fram var maturinn tilbúinn, og þá hafði hann eldað svínakjöt sem er í uppáhaldi hjá mér :D Og það var rosalega gott, samt var hann að elda það í fyrsta skiptið :P
Svo var bara haft það ofur kósý og síðan farið að sofa.
Þegar ég spurði hann afhverju hann hefði verið að þessu öllu sagði hann: “Æj bara. Langaði bara til þess að vera góður við þig og gefa þér gott að borða og mundi að þú sagðir einu sinni að þér fyndist svínakjöt svo gott.”
Æj vá. Mér finnst ég vera svo heppin með hann að maður er alveg að springa! :D
það er ömurlegt að vera peningalaus!