Þrek og tár
HANN:
Viltu með mér vaka er blómin sofa
vina mín og ganga suður að tjörn.
Þar í laut við lágan eigum kofa.
Léku við þar okkur saman börn.
Þar við gættum fjár um fölvar nætur
fallegt var þar út við hólinn minn.
Hvort er sem mér sýnist að þú grætur.
Seg mér hví er dapur hugur þinn.
HÚN:
Hví ég græt og burt er æskan bjarta
bernsku minnar dáin sérhver rós.
Það er sárt í sínu unga hjarta
að sjá hve slokkna öll þín skærstu ljós.
Ó hve fegin vildi ég verða aftur
vorsins barn og hérna leika mér.
Nú er lamað þrek mitt, þrotinn kraftur
þunga sorg á herðum mér ég ber.
HANN:
Hvað þá gráta gamla æsku drauma,
gamla drauma bara ór og tár.
Láttu þrekið þrífa stýristauma.
Það er hægt að kljúfa lífsins ár.
Kemur ekki vor að liðnum vetri?
Vakni ei nýjar rósir sumar hvert?
Voru hinar fyrri fegri betri?
Feld'ei tár en glöð og hugrökk vert.
HÚN:
Þú átt gott þú þekkir ekki sárin,
þekkir ei né skilur hjartans mál.
Þrek er gull en gull eru líka tárin,
guðleg svölun hverri þreyttri sál.
Stundum þeim er þrekið brýnt og kraftur
þögul höfuð féllu tár um kinn.
En sama rósin sprettur aldrei aftur,
þótt önnur fegri skreyti veginn þinn.
Höfundur texta: Guðmundur Guðmundsson
Höfundur lags: Otto Lindblad
Ehm.. lagið tengist kannski rómantík ekki beint.. en mér finnst þetta lag svo flott að ég varð setja textann hingað inn :)
Kv.Sleikjó ;)