Jæja, einsog margir velta vöngum hérna er ég nú líka að því. Vantar einhverjar hugmyndir frá ykkur.

Ég og kærastinn eigum árs sambandsfmæli núna um helgina. Ætla að bjóða honum út að borða um kvöldið og voða rómó.
En var að velta fyrir mér hafið þið einhverjar hugmyndir um hvað við getum gert um daginn? Langar að gera eitthvað skemmtilegt með honum en er víst alveg tóm.

Svona ef ykkur vantar smá upplýsingar þá er ég 16 og hann 17, fékk sem sagt bílpróf í janúar.