Ja ég er nú ekki expert í þessu en ætla bara að segja það sem ég held að virki ágætlega.
Hlusta vel (hafa áhuga á því sem hún er að segja), vera þú sjálfur því ef hún vill þig ekki þannig er það hennar mál, vera jákvæður við hana, alltaf hægt að koma beint út eeeen það er auðveldara að segja það en gera, ert ekki of uppáþrengjandi (sem er reyndar voða mismunandi eftir stelpum hvað þeim finnst hæfilegt svo það getur verið erfitt), vera góður? S.s. lána henni fyrir mat eða einhverju ef hana vantar, hlusta á vandmál hennar og hjálpa með opnum huga, tala mikið við hana því þá bæði kynnist þú henni betur og kemst að ýmsu um hana sem þú bæði getur notað eða einhverju sem lætur þig komast að því að hún hæfi þér ekki og þá líka kynnist hún þér og getur ýmist fundist þú skemmtilegur (vonandi) eða ekki en maður bara vonar fyrra, hrósa henni nokkuð mikið fyrir ýmsa hluti en mikilvægast er að vera maður sjálfur því það er mikilvægara að vera maður sjálfur en að vera með stelpu.
Sumir segja meira að segja að það sé mikilvægara að vera maður sjálfur en að vera ánægður en mér finnst það eiginlega ekki ganga upp því ég held að maður geti ekki orðið almennilega ánægður nema maður sé maður sjálfur! En nú er ég hættur! Er að fara til þín!