Má sjá…… Eins og karlaveldið lítur á þetta þá verður maðurinn að *segjast* ætla að giftast konunni. Þetta er eingöngu gert til að róa kvennmanninn niður og vinna smá frið fyrir karlmanninn. Aldrei er tekið fram hvenær hið eiginlega brúðkaup á eiga sér stað enda er þetta bara tómt loforð, gefið af týpískum karlmanni sem vill (skiljanlega) bara alls ekki gifta sig. Þetta (brúðkaupið) er dregið í mörg ár þangað til að kvennmaðurinn er kominn á sama plan og karlmaðurinn. Allir draumar um brúðkaup og öllu því tengt eru löngu horfnir úr hausnum á henni. Eftir margra ára sambúð með þessu typpasveiflandi apadýri, hefur hún bara ekki lengur minnsta áhuga á hjónabandi. Hjónaband er nú orðið það eina sem kemur í veg fyrir að konan geti pakkað saman hvenær sem er ,og komið sér eins langt í burtu frá þessum svíni og hún mögulega getur, vandræðalaust. Það er að segja ef það eru engir krakkaskítar í spilinu. Þá eru báðir aðilar líklegast (og afsakið lélega íslenska) FUCKED.
En hey, ekkert er lífið án magasára.