Hmm.. ég veit nú ekki mikið um þetta þar sem ég er ekki með reynslu…. but here it goes..
1) Nice guy er bara góður gaur. Strákur sem fer vel með stelpuna og hugsar vel um hana, lætur hana sjá að það er hún sem hann er að hugsa um, ekkert neitt annað. Oftast nær eru þeir soldið feimnir sérstaklega gagnvart hinu kyninu en það er ekki alltaf þannig, sumir eru allt annað en feimnir, fer allt eftir stráknum.
2) Mér finnst þessir nice guy's geggjaðir. Ég er nýbúin að kynnast einum og hann er bara frábær, við erum hinsvegar bæði mjög feimin þannig að þetta er soldið erfitt fyrir okkur en þetta er allt að koma til. Ég hef alltaf lent á ömurlegum, sjálfelskum gaurum sem hugsa um ekkert nema sjálfan sig, ekki veit ég af hverju ég fell alltaf fyrir þeim en af einhverri ástæðu geri ég það í hvert skipti, þannig að það var kominn tími til að ég hitti einhvern góðan.
3)Alls ekki, engir aumingjar.
4)Það er eitthvað við hörðu gaurana sem ég fíla, ég er ekki ennþá búin að finna út hvað það er.. en annars er ég ekkert meira fyrir hörðu gaurana heldur en þá sem eru nice. Ég hef bara hitt svo fáa sem eru nice við mig. :)
Ég vona að þetta hafi hjálpað þér eitthvað.. ;)