Halló! Mér fannst ég ógeðslega rómantísk í kvöld! Hahaha og langaði bara að deila því með ykkur :)
Karlinn var að vinna lengur en hann er vanur svo ég tók mig til og eldaði rosa góðan mat handa okkur og tók mér ansi góðan tíma í það.. Bað hann að hringja í mig þegar hann væri á leiðinni heim og hann gerði það….
Þá kveikti ég á kertaljósum, tók rauðvínsflöskuna úr vínrekkanum og lagði á borð.. Bar svo matinn á borðið rétt áður en hann kom heim! Íbúðin ilmaði af góðri matarlykt.
Hann kom svo inn, ógeðslega hissa á þessu öllu saman og varð mjög ánægður :) Enda langur vinnudagur að baki og örugglega ekki amalegt að koma heim í svona aðstæður :)
Svo eftir matinn lögðust við uppí sófa fyrir framan TV og kúrðum yfir Simpson :þ