Mér finnst alveg fyrir neðan allar hellur að þið séuð að ráðleggja 15 ára unglingi að bjóða stelpu á öðru stefnumótinu í pizzu og BJÓR! Þessi 15 ára einstaklingur er ekki einu sinni kominn með aldur til að fara á bannaða mynd í bíó.
En já, ég myndi hugsanlega bjóða henni á kaffihús, í bíó eða út að borða. Finnst kannski aðeins of snemmt að bjóða henni á stefnumót heim. Kannski að henni finnist það óþægileg aðstæða. En það er náttúrulega alltaf hægt að fara heim ef henni langar, eftir að maður er búinn að fara í bíó eða eitthvað.
Gangi þér annars bara vel. :)
Gaui