Jæja.

Ég er skotinn í stelpu. Vorum saman í 10. bekk og þá svona varð ég hrifinn af henni, en það gerðist bara svo seint :/ svo núna er hún í öðrum skóla en ég, og við tölum bara stundum á msn. En ég er alveg bálskotinn núna í henni. Veit ekkert hvað ég á að gera. Og ég er hrikalega feiminn eitthvað.

Ég hef svona nokkrar hugmyndir um það sem þið svarið en það er betra að lesa það bara.