Ég og kærastinn minn vorum búin að vera bestu vinir í meira en ár áður en við byrjuðum saman. Við vorum bara eitthvað að dúlla okkur og búin að vera að því í þrjá daga. Þá spurði vinkona mín okkur hvort að við værum byrjuð saman og hann var fyrri til að svar a en ég og sagði bara hreint og beint já. Ég varð pínu hissa en samt als ekki á móti því og svo spurði hann mig þegar að hún fór hvort að ég hefði eitthvað á móti því að hann hefði sagt þetta og ég sagði nei því að ég var búin að vera hrifin af honum í svolítið langann tíma og var að reyna að mana mig upp í það að spurja hann hvort að hann vildi ekki leifa þessu “dúlli” okkar að ganga aðeins lengra og byrja í sambandi. Við erum búin að vera saman núna í einhverja mánuði og allt er eins og í sögu :).
Nafli er lok fyrir ástand í alheimsvanda, úti sem og Gabríel…