Jæja, ég er ungur drengur sem er eins og gengur og gerist búinn að vera hrifinn af stelpu sem er með mér í skóla, í 5 ár!

En ég var að frétta það um daginn að það væri önnur stelpa - sem er góð vinkona stelpunnar sem ég er hrifinn af - sem væri hrifin af mér. Hún er falleg, skemmtileg og allt þetta það, en ég hef aldrei neitt verið að pæla í henni. En einhvernvegin held ég að þessi stelpa sem ég sé hrifinn af sé eitthvað að pæla í mér. En ég er bara svo ógeðslega feiminn við hana.

En alla vegana, hvað á ég að gera? Á ég að finna út hvort þessi stelpa sem ég er hrifinn af hvort hún sé hrifin af mér, eða fara bara að hugsa út í þessa sem er hrifin af mér?

Taka tillit til þess að ég er ekkert smá feiminn við þessa sem ég er hrifinn af, svo að HVERNIG ætti ég að finna út hvort hún væri eitthvað heit fyrir mér?

Takk, takk.