Málavextir eru þannig að ég kynntist stlpu í majlok á námskeiði, en ég festist ekki fyrir henni því að hugur minn var fullur af annari stelpu þarna á sama námskeiði (sem fór svo allt í klessu en það er önnur saga :)

En núna síðustu daga hef ég mikið verið að hugsa um hana og hef smátt og smátt farið að skilja að við gætum átt vel saman. Nú væri náttúrulega það gáfulegasta á hringja í hana, sem mig langar raunar að gera. Eini smávægilegi gallin við dæmið er það að ég fékk númerið hennar annars staðar frá, þeas ekki frá henni. Þessvegna veit ég ekki hvort ég ætti að hringja eða láta það vera..?