Ok, tek það strax fram að ég er hér aðalega að opna mig svo að ég bið ykkur vinsamlegast að vera ekki leiðinlegt við mig.

Ég er núna búin að vera að hitta þennan gaur í meira en mánuð. Það var æðislegt og allt en núna áðan var hann að segja mér að hann sé ekki tilbúinn í fast samband. Kemur svo með þessa leiðindarlínu “Vonandi getum við samt verið vinir”
Hefði hann ekki getað sagt mér það aðeins fyrr? Var hann kannski bara að spila með mig?
Er hann ekki þess virði að verða leið yfir?