Sko málið er að ég hangi rosalega oft með strákum og þetta er tengt einum ágætum strákavini mínum, kalla hann bara x. Ég, x og annar strákur sem við skulum kalla y erum mikið að hanga saman og mér hefur aldrei dottið í hug að hvorugur þeirra sé hrifinn af mér.
X hefur sagt mér hverri hann var hrifin af (fyrir svona hálfu ári eða einhvað) og ég spurði hann fyrir stuttu aftur og þá sagði hann engri.
Fyrir stuttu vorum við þrjú heima hjá y og ég og x sátum í rúminu en y var í tölvunni.
X færði sig allt í einu alveg upp að mér en svo stóð ég upp til að kíkja á einhvað í tölvunni sem að y var að segja mér að ég yrði að sjá og settist svo aftur, þá færði hann sig aftur alveg við hliðina á mér.
Svo gerðist sama dag að y þurfti að fara heim og ég og x vorum að tala saman og ég gerði einhvað geðveikt heimskulegt man ekki alveg hvað og við fórum að hlæja og hann sagði “Já þú ert nú daldið sæt.” Og hann er ekki einn af þessum sem er alltaf að segja þetta við stelpur, reyndar hef ég aldrei heyrt hann segja þetta.
Ég er bara að pæla í því hvort þetta séu einhver merki um að hann sé hrifinn af mér?