Ok.. það er nú þannig hjá mér núna að ég er í svoldið leiðinlegri stöðu. Ég er svaka hrifinn af stelpu í bekknum sem ógeðslega margir eru hrifnir af og svona. Hún er með svaka sambönd millri helling af stelpum og strákum í hverfum í kring. Hún gæti fengið sér kærasta bara með því að horfa á einhvern og ekki einu sinni segja neitt.

En það er nú þannig að ég er oft með henni svona í skólanum, við spjöllum saman sem vinir og svona voða góð við hvort annað og ég reyni alltaf svolítið við hana líka í leiðinni.

En ég mundi persónulega aldrei svona hafa kjark í að vera með neinni stelpu svona einn nema einhver sé með mér eða einhver með henni eða eitthvað svoleiðist sem þið skiljið.

Hvernig get ég látið hana líta meira svona við mér og hvernig get ég fengið kjarkinn í að vera svona einn með stelpu.

Besti vinur minn hann er ekkert svona mjög aðlaðandi fyrir stelpurnar gæti ég sagt, en hann hefur samt alveg svaka mikinn kjark til að vera einn í kringum stelpu/ stelpur einn ánþess að það sé t.d. besti vinur hans til að stiðja sig.