Eitt hrottalegasta sem þú getur sagt við strák þegar þú ert að segja honum upp er “ég á þig ekki skilið, þú ert of fullkominn, ég þetta gengur ekki lengur”.
Þetta var sagt við mig og ALLT annað hefði verið betra því einhvernveginn veit maður að þetta sé ekki satt.
Ef ég væri svona fullkominn, ætti ég þá ekki að segja henni upp? Þetta er lélegasta afsökun sem ég hef heyrt og meira ruglið. En þetta gerðist fyrir dáldið löngu og ég er löngu búinn að jafna mig en þetta gerðist svo aftur við vin minn.