Þetta er nú ekki algilt um stráka heldur á þetta við kvenþjóðina líka.
Það merkilega er að konur reyna oft við menn sem eru með hring eða þær vita að hann sé fastur og svo eins hjá karlmönnum.
En ég held einmitt að ein ástæðan hafi verið nefnd hér áðan, með boltann. En ég held að hin ástæðan sé að fá smá “egobúst”. En hvaða gaur eða kvensa verður ekki smá stolt af því að hafa tælt maka annars…?
Ég hef nú ekki gert þetta sjálf, en það eru þó nokkrar sem hafa reynt við minn gegnum árin og var ein sérstaklega slæm:
Hún komst í tölvuna í vinnunni þeirra og fann gsm númerið hans og í næstum heilt ár var hún alltaf að senda honum mjög “suggestive” sms og bjóða honum hingað og þangað og svo eitt skiptið kom sms sem lá við að hefði getað komið frá mér, kærustu til nokkurra ára.
Hann lét hana bara eiga sig og eyddi sms-unum en ég varð ekki beint sú kátasta yfir þessu og endaði með að ég lét hana heyra það.
Hef sem betur fer ekki hitt á hana síðan ;)
En svona eru samskipti kynjanna og efast ég stórlega að þau eigi eftir að breytast af einhverju ráði.
-Bugs