Eins og sést í undirskrift minni, þá er ég hrifinn af stelpu. Reyndar nokkuð mikið hrifinn ef nánar er út í það farið. Þannig er mál með vexti að ég var nokkuð óöruggur á mínum yngri árum (2 years ago), en eins og flestir vita, þá er 8.bekkur æfingahösslárin. En þannig er að ég hef í rauninni aldrei reynt alvarlega við stelpu, þó ég daðri nokkuð við stelpuvini mína, sem eru s.s. vinir mínir. Er stelpa þessi í 8.bekk, á gelgjuárunum, þó hún sé nú reyndar ekki óþolandi eins og þær flestar, og á hún bróður í mínum bekk, og er það þar sem vandamálið er, því að hann er nokkuð margmáll, talar annaðhvort um að selja hana hæstbjóðanda eða hótar strákum sem koma nálægt henni.
Vandamálið er samt frekar að kynnast henni meira, ég þekki hana þó ágætlega, og t.d. þá er elsta minning mín af henni og bróður hennar.
Er ég reyndar ekki alveg viss um hvert mitt vandamál er, en það er til staðar, og ef þið getið lesið eitthvað út út þessum upplýsingum, þá væri gott ef þið svöruðuð.
Ég skrifa, og tala, venjulega ekki svona.