Trúi því að það sé erfitt
Ég var einusinni veikur og varð rúmlyggjandi í 2 vikur og varð þunglyndur, fannst ekkert gaman og gat ekki einusinni lesið bók til skemmtunar á meðan. Eina sem ég gerði var að glápa á vegginn í 2 vikur, fyrsta skipti sem ég var virkilega þunglyndur.
Svo auk þess var fyrrv kærastan mín sem ég var aftur byrjaður að “dúllast” með, með leiðindi og skít í mig, var byrjuð að reyna við annann strák og vesen.
Þetta var fyrsta skipti sem ég íhugaði sjálfsmorð. Fyrst sagði ég alltaf að ef ég yrði þunglyndur og ætlaði að fremja sjálfsmorð mundi ég eyða öllum peningnum í eitthvað skemmtilegt, en ef maður er þunglyndur finnst manni ekkert skemmtilegt hvort eð er.