Ég er að hugsa um að leifa ykkur að heyra
frá fyrstu ári hjá mér og mínum heittelskaða

Við vorum nú frekar ung þegar við byrjuðum saman
en það er búið að sanda af sér ýmsa storma

OK þegar ég var 15 ára flutti á þennan litla stað og ég hataði allt sem honum tengdist
ég vildi ekki vera þarna
ég var að vinna úti og þessi sæti strákur var alltaf að koma og tala við mig
ég fór að umgangast hann og hans vini, og fara á skóla böllinn þeirra og svoleiðis.
En svo frétti ég að hann væri skotinn í mér og annarri stelpu.
Þannig að ég dró mig bara í hlé því þetta var hvortteðer ömurlegur staður.
En hann kom alltaf aftur og aftur.
Líka kom hann oft á gluggann minn og talaði við mig,en eftir að ég frétti að hin var líka í hans huga bauð ég honum aldrei inn heldur talaði bara við hann útum gluggann.
Kjáni ég!
En hann fékk stundum að koma inn
og einn daginn gleymdi hann stuttbuxunum
sínum eftir að hann hafði komið við hjá mér eftir æfingu.
Um kvöldið gat ég ekki hætt að hugsa um hann fryst að stuttbuxurnar væru þarna og að hann var farinn að koma á hverjum degi.
En þetta var góð afsökun til að fara til hans og skila þeim.
Og það gerði ég hljóp heim til hans og bankaði á gluggann hans
og þar var þessi æðislega vera sem gerði þennan litla ömurlega stað að besta stað jarðar.
Ég lánaði honum stuttbuxurnar og spurði
eigum við ekki bara að byrja saman
jú sagði hann og við kysstumst í glugganum í gegnum þessa rifu sem var á honum.
Þetta var eitt af þeim bestu kvöldum sem við höfum átt saman af mörgum.
Og erum enn kærustupar í dag og erum búin að eignast einn son saman, þrjá ketti en eigum tvo núna og okker eigið heimili.
Vonandi verðum við áfram í þessu ævintýri
og lifum hamingju söm til æviloka

Svo kannski kem ég með eitthvað meira sem við höfum gert rómó saman. Vandamál koma nú reyndar alltaf einhvern tíman upp en það er nú önnur saga.

takk fyrir mig
Kv Spo
EF getur verið stórt orð