Ég er 19 ára á fjölbraut. Ég er einn af þessum sem fólk tekur ekki eftir, enginn talar við og á enga vini. Ég stunda ekki partí eða böll því ég get ekki drukkið áfengi af líkamlegum orsökum og líður illa í hávaða.
Hvað á einhver eins og ég að geta gert til þess að hugsanlega ná athygli stelpna? Ég er ekki að halda að það dugi mikið að horfa á þær, en ég er feiminn og myndi aldrei þora að segja skapaðan hlut við þær (Plús að þær sem ég er virkilega hrifinn af eru að sjálfsögðu ekkert á lausu, sýnist mér).
Mér finnst allt ömurlegt og ómögulegt.