Þannig er málið besti vinur minn er orðin ásfanginn af mér og hann er alveg fullkominn en´ég veit ekki hvað það er ég bara get ekki orðið hrifinn að honum.
Mér var sagt að hann væri hrifinn að mér fyrir stuttu en svo fattaði ég með tímanum að hann er ástfanginn af mér.Hann er leiður ef að ég er veik eða kom ekki í skólann.
Hann notar ÖLL tækifæri til að snerta mig eða halda utan um mig.
Svo einu sinni fórum ég,hann, besta vinkona mín og besta vonkona hans saman út að borða.
Það var rosa gaman og allir skemmtu sér vel svo fór hann að reyna viöð mig og snerta mig á allskonar hátt mér fannst það í lagi og gerði ekkert.Svo fór ég frá borðinu og hann elti mig þannig við vorum ein,við fórum að spjalla og svo beygði hann sig yfir mig og var greinilega að fara að kyssa mig.
Ég hörfaði og sagði honum að koma aftur að borðinu.Svo er hann bara alltaf að horfa á mig og allta eitthvað að reyna við mig.
Hvað á ég að gera ég vil ekki særa hann með því að segja að ég hafi ekki áhuga en ég vil ekki vera´með honum í sambandi.
Hvernig get ég látið hann vita að ég vil ekkert samband án þess að særa hann.Hann er alvarlega ástfanginn af mér.
Afsakið stafsetningar villurnar.