Sko, ég er með strák, hann er nánast fullkominn og allt það. Svo einu sinni hitti ég hann, og ég var með bestu vinkonu mína og kærastann hennar með mér og kærastinn minn var með besta vin sinn með sér (semsagt, við vorum 5 þarna).
Þegar við vorum þarna þá faðmaði hann bestu vinkonu mína, en hann þekkir hana ekki neitt, og hann kyssti mig ekkert eða neitt, var bara eitthvað með vini sínum. Svo fórum við heim til mín, öll nema besti vinur hans, og við vorum bara eitthvað að chilla.
Svo fóru besta vinkona mín og kærastinn hennar heim og þá var hann bara að spurja af hverju besta vinkona mín fór og eitthvað, sagði að hún væri geggt skemmtileg og eitthvað.
Og svo eftir að hann fór þetta kvöld hefur hann ekkert talað við mig. Það er eins og að hann sé hrifinn af bestu vinkonu minni og eitthvað. Ég er geðveikt hrifin af honum, ég get ekki gleymt honum, ég leggst örugglega í þunglyndi ef við hættum saman. Hvað get ég gert?
Plz, ekki koma með leiðinleg svör.