Bara að nota mig???
Það er þessi gaur, sem sagði mér að hann væri hrifinn af mér fyrir nokkrum mánuðum. Það gerðist ekkert fyrst því að þá var ég á föstu en það er núna búið. Svo að um daginn vorum við nokkrir krakkar saman á rúntinum og allt í einu vorum ég og þessi gaur farin að kyssast og ég held að ég geti sagt að slefið hafi varla slitnað á milli okkar í nokkra klukkutíma. Og svo nokkrum dögum seinna bað hann mig að fara inná sig og ég gerði það. Og svo áðan var hann að segja mér að hann héldi að hann elskaði mig. En ég bara veit ekki hvort hann elskar mig sem persónu, eða hvort honum langi bara að sofa hjá mér. Ég hef eiginlega alltaf þekkt þennan gaur, hann var alltaf svona vinur vina minna, og einu sinni fannst mér eins og hann þoldi mig ekki. En svo byrjuðum við að vera góðir vinir núna í haust. Og ég held að ég sé að verða frekar hrifin af honum, ég bara þori varla að byrja með honum af ótta við að hann sé bara að nota mig! Hvað á ég að gera??